17.03.2009 22:42:58 / ragnaremil
Já við ákváðum að færa okkur um set.
Nýja síðan er:
http://ragnaremil.blog.is
»
12.03.2009 21:47:56 / ragnaremil
»
11.03.2009 17:35:07 / ragnaremil
..ekki mikið meira að segja um það nema allt gengur vel og ég er í góðum gír
»
07.03.2009 19:45:58 / ragnaremil
Þetta er allt í rétta átt hjá mér. Slímið er ennþá til staðar en hefur minnkað. Ég á það til að falla hressilega og þá sérstaklega þegar ég er nývaknaður eftir nætursvefninn. Vel hefur þó gengið að ná mér til baka. Í dag var pabbi hjá mér og með honum var nýja hjálparhellan mín, Haffi. Sýnist á öllu að við eigum eftir að ná vel saman. Haffi er læknanemi á 4. ári og eflaust mun það koma sér vel.
Hér er mynd af Haffa:
»
05.03.2009 21:06:16 / ragnaremil
Lífið gengur sinn vanaslímgang hjá mér. Framleiðslan hefur verið svolítið uppávið og Ýr bannar mér að fara heim. Það er nú allt í lagi, það fer vel um mig hérna með uppáhalds sjúkraliðunum mínum. Það er búið að vera að fikta svolítið í hnappnum mínum og hann Lúter er búinn að panta nýjan hnapp sem passar betur og lekur vonandi ekkert.
Hérna eru tvær uppáhalds, Sandra og Ragnhildur:

»
01.03.2009 22:21:39 / ragnaremil
Jæja, komið nóg af heimaveru. Búinn að vera viku heima, eftir viku á spítala. Var farinn að slappast ískyggilega í dag, liðið rétt náði að halda mér milli 80-90 á BiPAP og var hætt að standa á sama. Hékk rétt yfir 70 þegar verið var að hósta og aðeins eitt að gera: Hringja á bíl!
Er nú kominn á stofu 37 á deildinni minni, byrjaður á sýklalyfjum (mældist með nokkuð hátt CRP) því var ekki annað að gera. Er samt mikið betri núna, metta 97-98 á BiPAP en fell ef það er tekið af mér. Krossum fingur og vonum það besta.
Annars er Ýr byrjuð aftur, fyrsti dagurinn hennar í dag!!! Hún var nú nokkuð ánægð með kallinn, þrátt fyrir allt og allt, sérstaklega með brjóstkassann minn, hann hefur þanist vel út eftir að BiPAP stillingarnar voru auknar. Öndunarhljóð voru mun betri í efri lungum en áður.
»
23.02.2009 22:58:51 / ragnaremil
Kom heim í gær. Búið að ganga bara vel þangað til eftir hádegið. Þá
tók ég svaka dýfu og mömmu stóð ekki á sama. Ég datt alveg niður undir
20-30 í mettun og lítið gekk að ná úr mér skítnum. Mamma var ein heima
með Hildi frænku í heimsókn (sem betur fer). Þetta gekk brösuglega og
nú kom neyðarhnappurinn góði sér vel. Sjúkrabíll kom með ljósum og
látum en sem betur fer var mamma búin að ná mér upp undir 90 þegar þeir
komu. Viðbragðstími 8 mínútur. Ég var svo dasaður eftir þetta að ég
svaf bara næstu 2 tímana í Bipap. Það er víst engin vanþörf á að hafa
góða manneskju með mömmu hérna heima.....
Hér eru nokkrar myndir:
Ég á maganum á fína grjóna púðanum:

Lestarhjólið er flott:

Mörgæsa hringekjan:

Birta, ein af uppáhalds sjúkraliðunum okkar:

Hér eru svo myndirnar sem komust ekki inn um daginn

Hanna ofurhjúkka:

Ég og mamma soldið þreytt:
»
20.02.2009 22:36:42 / ragnaremil
Varð bara að sýna ykkur myndir af mér og Þórhildi Nótt vinkonu minni. Lékum okkur saman á leikstofunni á spítalanum á miðvikudag. Var svo gaman hjá okkur

Mamma fékk "lánaðar" nokkrar myndir af síðunni hennar Þórhildar, vona að það hafi verið í lagi.
Ég að sýna Þórhildi dót, voða góður við litlu vinkonu mína


Erum við ekki sætust saman?
»
18.02.2009 20:39:49 / ragnaremil
Ég er enn á spítalanum, gengur nokkuð vel fyrir utan nokkur föll annað slagið. Pabbi fór til Kanada á mánudaginn og kemur aftur á laugardaginn. Mamma er búin að vera hjá mér á daginn og svo amma og afi seinnipart og kvöld. Mamma hefur þá getað sótt stóru systkini mín á leikskólann á daginn og dúllast með þeim. Á morgunn fimmtudag og föstudag verð ég í hvíldarinnlögn og fær mamma frí á meðan, henni finnst ekki auðvelt að skilja mig eftir en hún þarf að hvíla sig og svo er ég í svo góðum höndum með uppáhalds stelpunum mínum.
Hitti hana Þórhildi Nótt vinkonu mína í dag, fórum niður á leikstofu og lékum okkur saman á dýnu. Ekkert smá spennandi fyrir okkur að hittast og gátum skoðað hvort annað vel og ég gat aðeins potað í þessa flottu stelpu. Svo komu trúðar og skemmtu okkur og fengum við blöðrur.
Ég fékk ansi slæmt fall þegar við ætluðum að fara að koma okkur upp á herbergi aftur. Mamma færði mig í rúmið mitt og ég gjörsamlega krassaði. Mettunin hrapaði niður í 15 og hjartslátturinn var orðinn ansi lár, allavega kominn niður í 60. Ég var orðinn hálf meðvitundarlaus en mamma, Sandra sjúkraliði og Inga sjúkraþjálfi hjálpuðu mér aftur upp, hóstuðu, soguðu og ventileruðu mig með súrefni. Allt gekk upp að lokum og var ég orðinn hinn hressasti hálftíma síðar. Svona ganga dagarnir hjá okkur fjölskyldunni, allt í ljúfu eina stundina en augnabliki síðar er barátta upp á líf og dauða.
»
14.02.2009 22:26:35 / ragnaremil
Jæja, nú er næstum hálfur mánuður síðan við skrifuðum síðast. Það er bara ágætt

Fyrsta vikan heima gekk bara vel, ekkert vesen. Síðast liðna viku hefur svo verið að síga á ógæfuhliðina og farið að skera mikið af nætursvefni hjá gamla settinu. Snemma i morgun ákváðum við svo að tími væri kominn fyrir mig að fara aftur á mitt gamla heimli, #38.
Ég mætti þar fyrir klukkan 7 í morgun og hef haft það ágætt í dag. Sofið megnið af deginum og leyfði bara gamla settinu að fara heim að leggja sig. Hún Hanna var með mig í kvöld og hún er lang flottust

Hérna eru nokkrar myndir:...
[serverinn hjá blogcentral er í bulli

setjum inn myndirnar þegar hann lagast.. ]
»
01.02.2009 23:28:57 / ragnaremil
Jæja, nú er ég kominn í mitt besta form og því ekki til setunnar boðið. Pabbi fór með mig heim í dag og allt gengur vel.
Í gær var fyrirlestur hjá Bach og Lou og fékk liðið fullt af góðum punktum til að halda áfram að hugsa vel um mig. Nokkrar myndir frá því og svo frá mér í dag þegar ég var að leika mér..
Liðið:

Pétur Lú og Bach

Lou að nota Ragnar Þór fyrir tilraunadýr :-)

Fjör

Best að lesa smá..
»
30.01.2009 21:24:41 / ragnaremil
Ég fékk tvo snillinga í heimsókn í dag. Það voru þeir Dr. John Bach og Lou Saporito RRT. Þeir spjölluðu heilmikið, kenndu okkur, spáðu og spekúleruðu... Þeim leist vel á kallinn, fannst ég sterkur og stór

Þetta var nú soldið svona eins og að fá Sopranos í heimsókn, sérstaklega Lou hehe.. en öllu gríni sleppt, þá vita þeir hvað þeir eru að gera, meðhöndla SMA-1 börn svo hundruðum skiptir og eru fremstir á sínu sviði í heiminum...
Ein af mér og Köglunum:

Ýr mætti á svæðið, alveg í þrumustuði...

Hildur Hjúkka:
»
28.01.2009 12:07:09 / ragnaremil
Stutt heimastopp þetta skiptið. Fór aftur á spítalann í herbergið mitt á mánudaginn. Féll all hrikalega niður, í kringum 30 á mánudagsmorgun en pabbi náði mér til baka. Get ekki lagt það á hana móður mína að vera einn með mig í þessu ástandi þannig að ég ákvað bara að skella mér "heim" á 38 og verð þar þangað til eitthvað gerist í heimaþjónustu málunum mínum.
Fyrir þá sem ekki vita, þá ákvað svæðisskrifstofan í Hafnarfirði upp á sitt eindæmi að ég hefði enga þörf fyrir einkahjúkkuna mína og því er búið að taka fyrir alla hvíld sem fólkið mitt getur fengið þegar ég er heima. Sýnist því að kerfinu sé að takast ætlunarverkið: Leggja mig og mína í gröfina.
Það er því miður ekki einleikið hve illa kerfið er að standa sig í mínum málum (MJÖG fáir undanskildir). Það bendir hver á annan og það er mín ólukka að vera BÆÐI langveikur og fatlaður. Maður skildi ætla að þetta tvennt ætti að kalla á tvöfalda hjálp en virðist sem þetta núlli hvort annað út.
En svona til að benda á að það er ljós í myrkrinu, endilega skoða þetta:
http://www.fsma.org/LatestNews/index.cfm?ID=3626&TYPE=1150
»
25.01.2009 21:02:53 / ragnaremil
Kom heim í gær, er þokkalegur. Er enn frekar kvefaður en mamma og pabbi eru dugleg að hósta, sjúga, banka o.s.frv.
Fullt af nýjum myndum inni á Barnalandssíðu okkar systkinanna.
»
23.01.2009 20:08:37 / ragnaremil
Það er búið að ganga vel hjá mér seinustu daga eftir að ég kom "heim" á 38. Það gengur vel að berja á vírus-ófétinu og allt í rétta átt. Fullt búið að vera af heimsóknum, Greiningarstöðin kom, þ.e.a.s. Þóranna Þroskaþjálfi og Þórunn iðjuþjálfi. Þær komu með fullt af dóti, m.a. flottann hnapp til að stýra rafmagnstækjum og mörgæsahringekju sem er frábær:

(hér er ég með hnappinn og á leið að hremma þessar mörgæsir! :-)

Hmm.. athyglisverður hnappur...
Hún Gróa leikskólapía sem sér um leikherbergið kom í dag. Hún las fyrir mig og við lékum okkur saman:

Ég var svo orðinn þreyttur eftir hádegið að ég ákvað að taka mér blund í BiPAPinu mínu, afskaplega endurnærandi ;-)

Stefnan er svo að ég verði uppi á BSH í nótt og eitthvað frameftir degi á morgun og komi svo heim í stuðið seinnipartinn.
Sjáumst hress!
»
Síður:
1 2 3 ...
10